Þegar einn reyndasti tæknistjórnandi og stjórnarmaður á Norðurlöndum vill verja tíma sínum í hugmyndina þína eykst kjarkurinn heldur betur.
Þegar Marianne Dahl sagði já við því að verða formaður ráðgjafaráðs okkar var Skiftr enn bara vandamál: skortur á gagnsæi á vinnumarkaði. Vandamál sem bitnar bæði á einstaklingnum og samfélaginu og sem gervigreind mun bara gera stærra. Marianne hefur skorað á okkur að skerpa á því fyrir hverja við smíðum og ýtt okkur til að koma vörunni í hendur raunverulegra notenda, líka þegar það tók á taugarnar, svo við gætum lært af þeim og smíðað fyrir þá. Um leið hefur hún haldið okkur við efnið um að nota tímann rétt, svo við byggjum upp rekstur sem stendur undir sér. Mörgum samtölum síðar spurði ég hana hvers vegna hún slóst í hópinn frá byrjun. Svarið sérðu í myndbandinu.